Skilmálar Vamos
Sjallinn ehf. - kt. 410905-0510
Almennir skilmálar
Þessir skilmálar eiga við um öll viðskipti á vefsvæðinu vamos.is. Seljandi er Vamos AEY, kennitala 410905-0510, með skráð heimilisfang að Jörvabyggð 10, 600 Akureyri. Vinsamlegast hafið samband í gegnum netfangið vamos@vamos.is eða síma 461-3030 ef spurningar vakna. Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi þessa skilmála.
Vörur og þjónusta
Vamos AEY selur vörur og þjónustu tengda rekstri sínum, svo sem aðgöngumiða á viðburði, gjafabréf og aðrar vörur. Öllum vörum er lýst eins nákvæmlega og unnt er á vefsíðunni. Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) og virðisaukaskattur er innifalinn ef við á. Vinsamlegast athugið að kaupandi þarf að hafa náð lögaldri til að kaupa aðgöngumiða á viðburði þar sem aldurstakmark gildir.
Afhendingarskilmálar
Stafrænar vörur, svo sem rafrænir aðgöngumiðar eða gjafabréf, eru afhentar með tölvupósti á uppgefið netfang strax að greiðslu lokinni. Ef um er að ræða vörur sem senda þarf með pósti er stefnt að því að afhenda þær póstþjónustu innan 2-3 virkra daga frá pöntun. Sendingarkostnaður bætist við í greiðsluferli og er sýnilegur áður en kaup eru staðfest.
Skilareglur og endurgreiðslur
Kaup á aðgöngumiðum á viðburði eru bindandi og þeim fæst almennt ekki skilað eða endurgreitt, nema viðburður falli niður af hálfu seljanda. Fyrir aðrar vörur gildir 14 daga skilaréttur frá móttöku vöru, að því gefnu að hún sé ónotuð, í óskemmdum upprunalegum umbúðum og gegn framvísun kaupkvittunar. Kaupandi ber kostnað af endursendingu.
Persónuvernd og greiðsluöryggi
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Farið er með allar persónuupplýsingar í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd. Kortaupplýsingar eru sendar beint til öruggrar greiðslugáttar færsluhirðis og eru því aldrei geymdar af seljanda. Greiðslur eru afgreiddar með Visa og Mastercard.
Lög og varnarþing
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Nafn Sjallinn Ehf
Kennitala 410905-0510
VSK 88466
Sími 461-3030
Netfang vamos@vamos.is
Heimilisfang Ráðhústorg 9, 600 Akureyri